Bláberg
Þessi síða er í þróun
Bláberg
HÖRPUSÝN FRÁ BLÁBERG

Myndavélarkerfi sem hugsar sjálft

AI-greind. Sjálfvirkar upptökur. Nútímalegt viðmót. Fjaraðgangur hvar sem er — kerfið vakir þegar þú getur það ekki.

Hörpusýn 6MP Myndavél

AI-greining

Greinir manneskjur, bíla og dýr sjálfvirkt. Skynjar óvenjulega atburði og tilkynnir strax.

VPN-öryggi

Dulkóðuð tenging. Engin opin port. Aðeins tæki sem þú heimilar geta séð myndavélarnar.

Fjaraðgangur

Opnaðu viðmótið hvar sem er — á fartölvu, síma eða spjaldtölvu. Enginn sérstakur hugbúnaður.

Nútímalegt viðmót

Þægilegt vefviðmót — ekki gamaldags NVR-skjár. Skoðaðu tímalínu, atburði og stillingar í vafranum.

Innbyggð greind

Sjálfvirk greining sem vakir þegar þú getur það ekki

Hörpusýn kerfið notar gervigreind til að bera kennsl á manneskjur, ökutæki og dýr — beint á staðnum, án skýjaþjónustu. Kerfið keyrir sjálfstætt, allan sólarhringinn, og tilkynnir þér aðeins þegar eitthvað sem skiptir máli gerist.

Manngreining — aðgreinir manneskjur frá dýrum, bílum og skuggum
Atburðasaga — skoðaðu tímalínu allra atburða í nútímalegu vefviðmóti
Sjálfvirkar tilkynningar — viðvörun þegar eitthvað óvenjulegt gerist
Keyrir á staðnum — engin gögn fara í skýið, persónuverndarlögum er fylgt í hvívetna
Líkanið er ekki þjálfað á þínum upptökum — fullkominn trúnaður gildir um þín gögn
24/7
Sjálfvirk vöktun
~4K
Upplausn
<1s
Greiningartími
128GB
Á hverri vél

Hannaðu þitt eigið kerfi

Veldu fjölda myndavéla og staðsetninga — fáðu verðáætlun strax.

Myndavélar
Hörpusýn 6MP Myndavél 4
128GB SD, POE, úti/inni, ~4K nætursjón · 24.990 kr / stk
Staðsetningar

Hvert Stöðusýn tæki þjónar einni staðsetningu. Venjuleg Stöðusýn ræður við allt að 15 myndavélar með gervigreind. Fyrir stærri kerfi er boðið upp á öflugri tölvur. Staðarnetstenging og uppsetning vélbúnaðar í skáp er innifalin.

Uppsetning myndavéla
Bláberg setur upp myndavélar fyrir mig Áætlað uppsetningargjald er 64.990 kr / myndavél. Þetta er eingöngu áætlun. Við þurfum myndir, teikningar og/eða koma að meta verkið með rafvirkja til að gefa endanlegt tilboð í hvert skipti.
Áskrift per staðsetningu
Af hverju þarf ég áskrift?

Hefðbundin stór upptökutæki (NVR) úreldast iðulega á nokkrum árum, bjóða oft á tíðum upp á klunnalegt viðmót og opna fyrir gríðarlega stóra öryggisgalla um leið og reynt er að setja upp fjaraðgang ásamt því að eiga erfitt með að taka við nýjustu hugbúnaðaruppfærslum.

Hörpusýn snýr þessu á hvolf. Í stað þess að kaupa dýrt og úrelt upptökutæki, fjárfestir þú í lítilli en gríðarlega öflugri Stöðusýn snjalltölvu sem verður hjartað í kerfinu þínu. Kerfið keyrir dulkóðaða fjartengingu (VPN) sem tryggir 100% öruggan aðgang hvar sem þú ert í heiminum, ásamt því að vinna alla gervigreind (hreyfiskynjun og manngreiningu) hratt og örugglega á staðnum um leið og hlutirnir gerast. Með áskriftinni tengist Stöðusýnin einnig við skýjaþjónustu Blábergs sem hugsar um vélina þína og sér um stöðugar öryggis- og hugbúnaðaruppfærslur, svo vélbúnaðurinn sem þú keyptir er alltaf eins og nýr og tilbúinn fyrir framtíðina.

Bæði hefðbundin og gáfuleg upptaka: Hver myndavél framkvæmir hefðbundna myndupptöku sem geymist sjálfstætt (u.þ.b. 10-14 daga) á innbyggðu 128GB SD-korti sem tryggir samfellda vöktun jafnvel þó staðarnetið detti út. Að auki safnar Stöðusýnin öllum "hreyfingar-atburðum" (þegar fólk eða bílar sjást) á sinn miðlæga harða disk (u.þ.b. 200-500GB) svo hægt sé að fletta leifturhratt í gegnum markverða atburði úr öllum vélum samstundis í beint úr sama vefviðmótinu.

Grunnur
4.900 kr / mán
per staðsetningu
Gervigreindar módel keyrð á staðnum
Nútímalegt vefviðmót
Beint streymi úr vafra (eingöngu á staðarneti)
Upptökustýring aukalega umfram SD kort
Möguleiki á fjaraðstoð
Fjaraðgangur hvar sem er (VPN)
Reglulegar hugbúnaðar- og öryggisuppfærslur
Heilsutilkynningar ef vél eða upptaka bilar
Mánaðarleg vöktunarskýrsla
Valkvæðar viðbætur
Viðhaldssamningur Árleg vettvangsheimsókn ásamt þjálfun og endurmenntun stjórnenda eftir þörfum. Við þrífum linsur myndavéla af óhreinindum sem safnast saman með veðri og vindum og trufla nætursjón, yfirförum útikapla, fínstillum sjónarhorn, rykhreinsum netþjónaskáp og ástandsprófum SD-kort (skipt út ókeypis ef þau bila innan ábyrgðartíma). — 24.000 kr / ár / staðsetningu
Kerfismynd